Í Sjávarháska

Rokkurró

Í ólgusjó
ég reyni að leita að landi, landi,
sem veitir skjól
gegn ölduróti mannhafsins.
Í ólgusjó
ég reyni að leita að landi, landi,
sem veitir skjól.

Á miðri leið
þá sé ég hvar þú ert kominn, kominn,
að fylgja mér
að landinu sem mig dreymir um.
Á miðri leið
þá sé ég hvar þú ert kominn, kominn,
að fylgja mér.

Á nýjum stað
ég finn að áhyggjur hverfa, hverfa,
með þig við hlið
bíða bjartari dagar mín.
Á nýjum stað
ég finn að áhyggjur hverfa, hverfa,
með þig við hlið.

Tracker

All lyrics are property and copyright of their owners. All lyrics provided for educational purposes only.