Draumadís

Kælan Mikla

dansandi draumadís
brosið kalt, klædd í ís
horfið allt, hjartað frýs
martraða dauðadís
leiddu mig út í nóttina
leyfðu mér að dansa við skuggana
tunglsljósið lýsir upp augun mín tóm
ég dansa á frosnum hælaskóm
sjáðu mig, klökum klædda prinsessu
með ískristalla kórónu
það glampar á hana svo glitrandi bjarta
að hún felur næstum því hjartað mitt svarta
dulan bjarta hylur hjartað svarta

Tracker

All lyrics are property and copyright of their owners. All lyrics provided for educational purposes only.