Guðlegt Réttlæti

Helfró

Sjá
Er ég sest í dómarasæti
Og tek eignanámi veldisprota
Yfir hlutskipti manna

Upp eru runnin þáttaskil í sögu þessa heims
Vanþóknun skal vera mitt leiðarljós
Er ég útdeili dýrum dóm
Hjarðhegðun, undirokuð af straumnum

Armir heiglar leiðast í blindni
Fyrirlitleg kvikindi enga aumkun fá
Lánist mér að reiða hátt til falls
Valdið vegur þungt í minni greip

Mér rennur blóðið til skyldunnar
Að skilja sundur þá sem heiminn skulu erfa
Og þá sem af því himnaríki verða


All lyrics are property and copyright of their owners. All lyrics provided for educational purposes only.